Skilmálar
Síðast uppfært: mars 2026
Verð og skattar:
Vöruverð er í íslenskum krónum og skattur er innifalinn í uppgefnu verði. Seljanda er heimilt að breyta verði fyrirvaralaust í vefversluninni.
Pantanir:
Pöntun er staðfest með tölvupósti. Það getur komið upp að það þurfi að hætta við pöntunina vegna skorts á birgðum, rangs vöruverðs, eða gruns um svik.
Greiðslur:
Greiðslur eru samþykktar í gegnum Teya greiðslulausnir (kredit-/debitkort). Greiðsla þarf að vera framkvæmd áður en vara er send eða afhend.
Sendingar:
Við sendum aðeins innanlands, með Dropp. Sendingar geta tafist af ýmsum ástæðum sem seljandi hefur enga stjórn á.
Skil:
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin með tilkynningu til seljanda á runuverk@outlook.com. Varan þarf þó að vera í upprunalegu ástandi í óskemmdum umbúðum þegar henni er skilað nema um gallaða vöru er að ræða. Einnig þarf kaupandi að geta sýnt fram á kaupin með pöntunarstaðfestingu eða kvittun. Seljandi hefur heimild til að hafna þeim skilum sem uppfylla þessi skilyrði ekki. Kaupandi ber ábyrgð á að greiða sendingarkostnað til að skila vörunni nema varan sé gölluð. Eftir að seljandi fær skilavöruna afhenda fær kaupandi staðfestingartölvupóst, en endurgreiðsla getur tekið allt að 14 daga eftir það. Ef vara er skemmd eða gölluð þegar kaupandi fær hana í hendurnar þarf að hafa samband við seljanda sem fyrst í gegnum tölvupóst, með pöntunarnúmeri, lýsingu á galla og mynd. Kaupandi greiðir fyrir endursendingu á gölluðum eða skemmdum vörum og sendir nýja vöru eða endurgreiðir innan 14 daga.
Takmörkun ábyrgðar:
Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni á vöru sem hefur orðið eftir notkun hennar.

