Um höfund
Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, fæddist 15. nóvember 1926.
Hún hóf kornung listnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar kynntist hún verðandi eiginmanni sínum, Gesti Þorgrímssyni, og þau héldu nýgift til Kaupmannahafnar til að nema við Konunglegu Listaakademíuna.
Þau fluttu svo aftur heim til Íslands með nýfæddan son og þurftu að leita leiða til að vinna fyrir sér á listasviðinu.
Þau stofnuðu þá leirmunagerðina Laugarnesleir og framleiddu keramiklistmuni í nokkur ár. Þau áttu síðar á ævinni eftir að hverfa aftur að leirmunagerðinni, en lengi var kennsla aðalstarf þeirra beggja.
Rúna vann einnig við myndlýsingar bóka og einstaka sinnum auglýsingagerð.
Rúna vann verðlaunasamkeppni sem haldin var í tilefni þjóðhátíðarinnar 1974 og veggplattarnir með myndum hennar, framleiddir af Bing og Grøndahl, náðu gríðarlegum vinsældum. Í kjölfarið vann hún fleiri hönnunarverkefni fyrir erlenda aðila.
Gestur og Rúna unnu saman að mörgum stórum skreytingarverkefnum auk samvinnunar í leirlistinni, þar sem hann mótaði en hún skreytti. Þar fyrir utan störfuðu þau sjálfstætt að list sinni, hann í höggmyndalist og hún við málverk, bæði á leirflísar og pappír.
Rúna var mikilvirkur myndhöfundur fram á tíræðisaldur. Myndir hennar einkennast af mjúkum formum og léttum, leikandi línum. Myndefnið er oft hlutbundið; konur, fuglar og fiskar dansa gjarnan á myndfletinum, en í óhlutbundnum verkum er íslensk náttúra og birta alltaf nálæg.
Rúna er enn andlega hress og býr nú á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Rúna er enn andlega hress og býr nú á Hrafnistu í Hafnarfirði.
